Skoða körfu Þú getur ekki sett þetta magn af vörunni í körfu — við eigum 2 á lager, en þú ert með 2 í körfunni þinni.
Skoða körfu “Krokket pro – Sett í tösku” hefur verið bætt í vörukörfuna þína.
Dixit
6.790 kr.
Spil ársins 2010 og stórskemmtilegt fjölskyldu- og partýspil!
Dixit gengur út á að leikmenn skiptast á að vera sögumenn. Sögumaðurinn velur spjald af hendi og notar orð, setningu, hljóð, málshátt eða bara hvað sem er til að lýsa spjaldinu sínu. Það eru í raun og veru engin takmörk fyrir því hvað má segja og hægt er að sækja innblástur í ljóð, söngva, kvikmyndir, bókmenntir o.s.frv. Hinir leikmennirnir velja eitt af sínum spilum sem þeim finnst passa við lýsingu sögumannsins. Allir leggja spilið sem þeir völdu á hvolf, sögumaðurinn stokkar spilin og snýr þeim svo upp. Þá eiga allir að reyna að giska hvaða spjald sögumaðurinn á. Ef enginn giskar á rétt spjald — eða allir giska á það — þá fær sögumaðurinn engin stig. Kúnstin fyrir sögumanninn er því að segja eitthvað sem hvorki segir of mikið né of lítið til um hvað er á spjaldinu, þannig að sem líklegast verði að einhverjir leikmenn kjósi rétt en ekki allir.
Spilið inniheldur 84 gullfalleg spjöld með mismunandi myndum eftir listakonuna Marie Cardouat sem kitla ímyndunaraflið með, oft á tíðum, hnyttnum og óútreiknanlegaum afleiðingum.
Dixit er smellið og skemmtilegt spil fyrir alla, jafnt unga sem aldna. Þetta margverðlaunaða fjölskyldu- og partýspil hefur farið sigurför um heiminn og var meðal annars valið „Spil ársins 2010“ í Þýskalandi (Spiel des Jahres).