Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Twin Tin Bots

7.990 kr.

Veglegt og skemmtilegt borðspil frá höfundi Small World

Kristall er framtíðin! sagði starfsmaðurinn á ráðningaskrifstofunni og nú ertu komin/n á hjara veraldar með nokkrum samstarfsfélögum og fullt af vélmennum. Þú getur að minnsta kosti skemmt þér vel með vélmennununum!

Twin Tin Bots er veglegt og skemmtilegt borðspil sem kennir einfalda forritun og þjálfar skipulagshæfni. Leikborð er tvískipt eftir því hvort 2-4 eða 5-6 leikmenn eru að spila. Hver leikmaður hefur tvö vélmenni til umráða og notar þau til að ná í eins mikið af kristöllum og hann kemst yfir og fara með þá í höfuðstöðvar. Vélmennunum er stýrt með einfaldri röð skipana (skífum) en samskipti eru takmörkuð: Þú verður að skipuleggja fyrirfram þar sem aðeins er hægt að breyta einni skipun í hverri umferð. Getur þú unnið í haginn, skipulagt þig vandlega og safnað fleiri kristöllum en samstarfsfélagar þínir?

Ítarlegar leikreglur fylgja sem innihalda m.a. einfaldaðar reglur til að spila með yngri krökkum og aukareglur sem hægt er að bæta ofaná grunnleikinn til að gera hann enn stærri og skemmtilegri!

Availability: Á lager

Vörunúmer 41-00005 Vöruflokkar ,

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-6
Leiktími: 50 mín
Aldur: 13+
Hönnuður: Philippe Keyaerts
Innihald:
– tvíhliða leikborð
– tvíhliða kristalsbraut
– 18 gegnsæir plastkristallar
– 6 plast höfuðstöðvar
– 12 plast vélmenni
– 6 forritunarborð
– 6 sett af 16 skipunarskífum
– 13 sérstakar skipunarskífur
– 3 niðurtalningarskífur
– 1 höfuðstöðvatákn
– 3 steinatákn
– 3 slettutákn
– 6 fjarflutningartákn
– 3 moldartákn
– leikreglur
enska

Vörumerki

iello

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.