Spil Kluster Trio

4.799 kr.

Innihaldslýsing:

  • 24 seglar
  • Leikvallaspotti
  • Leiðbeiningabæklingur

Verslun – Skemmuvegur 6

Netverslun

Vörunúmer BLE699677 Vöruflokkar ,

Deila

Kluster Trio er stórskemmtilegt borðspil með seglum, tilvalið fyrir spilakvöld með vinum eða fjölskyldu! Reglurnar eru alls ekki flóknar, en þrátt fyrir það eru margar leiðir til að spila.

2-4 leikmenn
Spilasvæðið er afmarkað með því að gera hring úr spotta og skiptast leikmenn á að leggja seglana sína inn í þann hring. Sá fyrsti til að losna við alla seglana sína vinnur og hægt er að nota seglana eða spottann til að færa aðra segla sem liggja nú þegar á leikborðinu. En passaðu þig, því þú þarft að taka alla þá segla sem festast saman eða fara út úr afmarkaða svæðinu á meðan þú átt leik!

1 leikmaður
Sömu reglur gilda um 2-4 leikmenn og þegar einungis einn leikmaður spilar Kluster Trio, en má hann einungis gera tvö mistök. Öll atvik þar sem leikmaður þarf að taka segla eru talin sem mistök.

5 eða fleiri leikmenn
Leikmenn detta úr leik ef seglar festast saman eða fara út af afmarkaða svæðinu þegar þeir eiga leik.

Hægt er að blanda saman tveimur Kluster Trio spilakössum til að koma enn fleiri leikmönnum inn í hópinn.
Einnig er hægt að spila leikinn í svokölluðu Jafnvægi, þar sem hann verður enn óútreiknanlegri, því seglarnir verða að standa upprétt!