Lítil, sniðug gestaþraut frá Recent Toys. Þrautateningurinn er úr mjúku plasti og festur við lyklakippu svo hægt er að taka hann með hvert sem er til að koma hreyfingu á heilann, t.d. á ferðalagi eða á biðstofu. Þrautin virkar eins klassískur þrautateningur. Snúðu hliðunum til að rugla litunum en reyndu svo að raða þeim þannig að hver hlið verði einlit.