Tilbrigði við hið geysivinsæla samvinnuborðspil Pandemic fyrir 2-5 leikmenn. Leikmenn fara sem fyrr í hlutverk sóttvarnarteymis og reyna að halda banvænum sjúkdómum í skefjum en í þessari útgáfu er spilað með teningum. Hún er auðveldari í uppsetningu og tekur styttri tíma að spila heldur en hefðbundið Pandemic og hentar því yngri leikmönnum. Smit og ferðamátar ákvarðast með teningakasti svo erfiðara er að hafa stjórn á því sem gerist. Þegar leikmenn spila Pandemic: Lækningin þurfa þeir því að vera við öllu búnir allt þar til yfir lýkur.