Spennandi og nýstárlegt Pandemic samvinnuspil fyrir 1-5 leikmenn, 8 ára og eldri. Í stað þess að leika sóttvarnarteymi og berjast við veirur og sjúkdóma, taka leikmenn sér hlutverk þegna Rómarveldis sem verja það gegn innrásum barbara. Herinn er veikburða og þið verðið að vinna saman til þess að hrinda árásum Engil-Saxa, Gota, Vandala og Húna. Til þess þarf að fjölga hermönnum, víggirða borgir, mynda bandalög og berjast í orustum. Hver leikmaður hefur hlutverk með gagnlegum hæfileikum en aðeins þegar þið vinnið saman getið þið reynt að forða Rómarveldi frá falli.