Lyklakippa með þrautastjörnu sem svipar til hins klassíska Rubiks töfratenings að því leyti að það þarf láta litina passa saman (sem er hægara sagt en gert með svo mörgum hliðum og flötum).
Hentar sérlega vel fyrir þá sem hrifnir eru af skemmtilegum heilabrotum og eru á höttunum eftir nýrri ögrun. Teningurinn er á handhægri lyklakippu og er tilvalinn til að taka með í ferðalagið og dunda sér við í löngum bílferðum, flugvélinni, sumarbústaðnum eða á sundlaugarbakkanum.