Skemmtilegt spil frá Shuffle fyrir 2-4 Harry Potter aðdáendur, 7 ára og eldri. Einn leikmaður leikur þann sem leitar dauðadjásnanna en hinir fela dauðadjásnaspilin á góðum felustöðum í rýminu og gefa þeim sem leitar síðan vísbendingar eftir vísbendingaspilum sem dregin eru. Fjörugt spil sem fær leikmenn til að standa upp og hreyfa sig.