Skemmtilegur leikur frá Janod fyrir 2 leikmenn, 5 ára og eldri. Leikmenn draga skífu með mynd af dýri og spyrja andstæðinginn já-eða-nei spurninga til að reyna að komast að því hvaða dýr hann dró og útiloka þau sem hann dró ekki. Sá sem er fyrri til að giska rétt á eftirlýsta dýrið vinnur umferðina. Vinna þarf 3 umferðir til að vinna spilið.