Skoða körfu “Píluspjald” hefur verið bætt í vörukörfuna þína.
Downforce
5.990 kr.
Spennandi kappaksturs-og veðmálaleikur fyrir 2-6 leikmenn, 10 ára og eldri. Leikmenn keppa í spiladrifnum kappakstri, uppboðum og veðmálum í þessu hraða og fjöruga spili. Byggt á vinsælu verðlaunaspili eftir Wolfgang Kramer, Top Race. Leikmenn byrja á því að berjast um bílana sem eru í boði með uppboði, síðan nota þeir spilin sín til að hreyfa þá um brautina og veðja í laumi um hver þeir haldi að sigri kappaksturinn. Spilin hafa líka áhrif á spil andstæðinganna svo tímasetning er fyrir öllu þegar spil eru lögð út. Ríkasti leikmaðurinn í leikslok sigrar.