Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Codenames XXL

7.840 kr.

Það er eitthvað dularfullt á seyði… eitthvað STÓRkostlega dularfullt…

Skemmtilegt, margverðlaunað og risastórt orðaspil. Leikmenn skipta sér í tvö njósnaralið og markmið þeirra er að finna liðsfélaga sína sem táknaðir eru með dulnefnum á leikborðinu. Njósnameistarar hvors liðsins geta borið kennsl á njósnarana og gefa liðinu sínu vísbendingar til að leiða það að réttu dulnefnunum. Liðið sem fyrst tekst að ráða öll dulnefni af réttum lit vinnur. En gætið ykkar, leigumorðinginn gæti leynst á bak við eitt þeirra! Frábær skemmtun fyrir 2-8 leikmenn.

Spilið er á allan hátt eins og upprunalega Codenames spilið fyrir utan að allir leikhlutir eru tvöfalt stærri, þ.e.a.s. spjöldin… ekki tímaglasið… þið fáið ekki lengri tíma… múhahaha! En nú geta allir séð orðin greinilega og fleiri geta spilað.

Ath! Spilið er á ensku.

Availability: Á lager

Vörunúmer 49-6039 Vöruflokkar , Tögg ,

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-8
Leiktími: 15 mín
Aldur: 11+
Hönnuður: Vlaada Chvátil
Innihald:
– 16 RISAnjósnaraspjöld í tveimur litum
– 1 RISAgagnnjósnaraspjald
– 7 RISAalmenn borgaraspjöld
– 1 RISAleigumorðingjaspjald
– 40 RISAtáknlykilsspjöld
– 1 RISAspjaldastandur
– 200 RISAspjöld með 400 dulnefnum
– 1 tímamælir (venjuleg stærð)
– 1 leikreglur

Vörumerki

Czech Games Edition

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.