Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Catan – Evrópa

2.995 kr.

Alvöru Catan en samt allt annað!

Sjálfstætt spil byggt á Catan spilunum þar sem leikmenn taka að sér hlutverk valdamikilla verslunar-höfðingja á miðöldum í Evrópu.

Stór verslunarfélög á miðöldum í Evrópu senda kaupmenn sína af stað til að finna kaupendur fyrir vörur sínar. Landsvæðin í kringum verslunarstöðvar útvega þér tekjur í formi hráefna. Þú getur eignast fleiri verslunarstöðvar ef þú færð kaupmenn til liðs við þig og sendir þá af stað til að stofna útibú á heppilegum stöðum. Vöruhúsið þitt fyllist af varningi með stofnun hverrar nýrrar verslunarstöðvar. Þú þarft að afhenda varninginn til verslunarstöðva í eigu annarra með hjálp verslunarvagna. En aðeins er hægt að næla sér í viðskiptin ef þú kemst fljótt á staðinn – fljótar en hinir leikmennirnir. Því einungis fyrsti kaupmannsvagninn getur afhent vörur. Þú vinnur ef þú ert fyrsti leikmaðurinn til að byggja allar verslunarstöðvarnar þínar og selja öðrum allan varninginn þinn.

Sýndu hversu snjall verslunarbarón þú ert – margvíslegar ákvarðanir bíða þín!

Availability: Á lager

Vörunúmer 49-9005 Vöruflokkar , , Tagg

Deila

  • Fjöldi leikmanna: 3-4
  • Leiktími: 75 mín
  • Aldur: 12+
  • Innihald:
    – 1 leikborð
    – 120 spjöld
    – 2 spilabakkar
    – 68 peningar
    – 4 sett af spilakubbum úr viði
    – 15 talnaskífur
    – 1 ræningi
    – 40 vöruskífur
    – 2 teningar
    – 4 byggingarkostnaðarspjöld
    – Leikreglur
  • Leikreglur:
    islenska

Vörumerki

Nordic Games

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.