Líflegir leikfangagaurar!
Zoob Dudemaker inniheldur 75 stk sem hægt er að setja saman í þrjá mismunandi gaura sem þurfa að sinna brýnum verkefnum; slökkviliðsgaurinn með bakpoka og vatnsslöngu; klifurgaurinn með bakpoka og haka eða hlaupabrettisgaurinn með hlaupabrettið sitt. Einnig er hægt að gera nokkur farartæki fyrir þá.
Aðveldar myndaleiðbeiningar fylgja.
Zoob framleiðir skemmtilega smellukubba sem líkja eftir líffræðilegum formum og hreyfingum og geta hreyfst eftir að búið er að setja þá saman. Leikfang sem hentar þannig bæði sem byggingarleikfang og sem þykistuleikfang en hvort tveggja örvar ímyndunarafl og sköpunargáfu barna.