Listamenn:
-100 spjöld með 600 hugtökum í 7 flokkum
-210 söguorðaspjöld
-Leikreglur
3.595 kr.
Frábært orðaspil fyrir 3 eða fleiri leikmenn, 10 ára og eldri, frá Thames&Kosmos eftir Inku og Markus Brand. Í Word Slam er leikið í tveimur liðum sem bæði hafa sögumann. Sögumennirnir fá báðir sama svarhugtakið og verða samtímis að gefa vísbendingar til liðanna sinna svo liðin geti giskað rétt á svarið. Þetta verður að gerast hratt því þeir eru á tíma og á móti hverjum öðrum. En þetta er ekki létt, sögumennirnir mega nefnilega alls ekki tala eða leika! Þeir verða að segja sögurnar sínar með spilunum. Á hverju þeirra er eitt orð, nafnorð, sagnorð, lýsingarorð eða forsetning. Sögumaðurinn þarf að beita sköpunarkrafti til að segja söguna með takmörkuðum orðaforða. Og liðsfélagar hans þurfa að hugsa hratt til að túlka spilin. Liðið sem fyrr giskar rétt fær stig og liðið sem er stigahærra í leikslok sigrar.
Ath. Spilið er á ensku.
Availability: In stock
Verslun – Skemmuvegur 6
Netverslun
Listamenn:
Weight | 0,4 kg |
---|---|
Dimensions | 13 × 5 × 18 cm |
Skráðu þig á póstlistann okkar til að fylgjast með nýjungum og tilboðum
10-17 virka daga
11-15 laugardaga
Netverslun alltaf opin
FYLGDU OKKUR
VÖRUFLOKKAR