Glæsilegt 8000 bita púsl frá Educa með þekktu málverki eftir spænska listmálarann Diego Velázques frá 17. öld. Málverkið sýnir konur við vefstóla en er oftast túlkað í samhengi við eina söguna úr Ummyndunum rómverska skáldsins Óvidiusar. Í þeirri sögu tapaði mennska konan Arakna veðmáli við gyðjuna Pallas Aþenu um hvor gæti ofið betur og var breytt í könguló. Púsluð stærð er ca. 192 x 136 cm.