Skemmtilegt handavinnusett frá Goula fyrir börn. Inniheldur efni og áhöld til þess að búa til taudúkkuna Anníku og fötin hennar. Fyrst þarf að sauma saman útklipptu feltbútana og sauma á þá hár, augu og munn til að mynda líkamann. Síðan þarf að fylla hann með troði og sauma saman. Loks þarf að sauma fötin utan á. Þá er Anníka tilbúin.