Skemmtilegt bardagaspil þar sem þekktar persónur héðan og þaðan berjast þar til ein þeirra stendur uppi sem sigurvegari. Í þessari útgáfu eru það Rauðhetta og Beowulf sem taka slaginn. Hvort þeirra hefur mismunandi eiginleika og hjálparsveina sem gagnast þeim í bardaga. Leikmenn berjast með því að draga og leggja út spil með aðgerðum, og færa peð um leikborðið. Einnig hægt að spila í 2 manna liðum. Hægt er að etja saman hvaða hetjum sem er úr Unmatched spilaflokknum.