20%

Ubongo

6.990 kr. 5.592 kr.

Hratt! Hrífandi! Einfalt!

Ástæður þess að Ubongo er margverðlaunað fjölskylduspil:
Hratt – því að allir leikmenn keppast samtímis við að raða formum rétt niður á Ubongo-spjöldin.
Hrífandi – því að enginn vill stoppa og beðið er eftir næstu umferð með eftirvæntingu.
Einfalt – því að reglurnar eru útskýrðar í stuttu máli.

Hver leikmaður fær þrautaspjald og 12 form. Einn leikmaður kastar teningnum og snýr stundaglasinu við. Táknið á teningnum segir til um hvaða form er heimilt að nota. Nú reyna allir leikmenn eins fljótt og auðið er að raða formunum rétt á spjaldið. Sigurvegari er sá sem er með flesta gimsteina í sama lit í lokin.

Skemmtilegt og ávanabindandi spil með afar einföldum leikreglum – auðvelt að byrja, erfitt að hætta!

Availability: Á lager

Verslun – Skemmuvegur 6

Netverslun

Vörunúmer 49-9090 Vöruflokkar , Tögg ,

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-4
Leiktími: 20-30 mín
Aldur: 8+
Stærð pakkningar: 29,6 x 29,6 x 7,2 sm
Hönnuður: Grzegorz Rejchtman
Útgefandi: Kosmos Verlag
Innihald:
– 36 þrautaspjöld með 72 spilasvæðum
– 4 x 12 form
– Leikborð
– Stundaglas
– Teningur með táknum
– 84 gimsteinar
– 4 leikpeð
– Leikreglur
Þyngd3 kg

Vörumerki

Kosmos