Flottur rauður traktor af gerðinni Big Wheel frá Jamara sem er í raun fjórhjól með pedölum fyrir börn, 3 ára og eldri. Auðvelt er að stýra traktornum og hann er með sveifluás að framan, þægilegu sæti sem hægt er að aðlaga, flautu, hallavörn og festingu fyrir vagn. Notist utandyra á jöfnu undirlagi. Stærð: 114 x 54 x 64 cm. Hægt að fá kerru til að setja aftan í traktorinn.