Hefðbundnar mexíkóskar hauskúpur Colors of the World
Skemmtilegt 1000 bita púsl frá EuroGraphics með mynd af fagurlega skreyttum hauskúpum sem í Mexíkó eru kallaðar Calavera. Hauskúpurnar (sem eru sjaldnast raunverulegar hauskúpur) eru skreyttar og málaðar á þennan litríka hátt í tilefni Dags hinna dauðu (Día del Muertos) sem haldinn er hátíðlegur í byrjun nóvember.