- Mjög fljótlegt og auðvelt að breyta vagninum eftir því sem þörf er á hverju sinni.
- Hjólatengi og göngudekk fylgja, en hlaupa- og gönguskíðasett er selt sér.
- Auðvelt að brjóta vagninn saman fyrir flutning eða geymslu.
- Hallanlegt sæti.
- Mjög góð stillanleg fjöðrun dregur úr höggum og gerir ferðina þægilegri bæði fyrir börn og foreldra
- Þægilegt einangrað sæti sem auðvelt er að þrífa.
- Gott farangursrými, hægt að smella upp fyrir aukið fótapláss þegar hlaupið er.
- Loftrásir að framan sem auðvelt er að opna til að hámarka loftflæði, sérstaklega þegar regnplast er notað.
- Stillanlegt handfang sem auðvelt er að aðlaga að hæð foreldra þegar það er gengið/hlaupið.
- Fjöldi aukahluta fáanlegir til að auka þægindi og sníða vagninn að þörfum barna og foreldra.
- Afturljós fylgir með til að auka öryggi og sýnileika.
- Sólhlíf og regnplast fylgja ásamt 5 mm quick release öxull. Ef hjólið sem draga á vagninn er ekki með þannig öxul er hægt að fá fjölda af öxlum og tengjum svo nánast hvaða hjól sem er getur dregið vagninn – ef um 12 mm öxul er að ræða þá þarf að liggja fyrir lengd á öxlinum og grófleikinn á gengjunum. Sjá nánar í þessu SKJALI
Það sem Cross hefur umfram fram Lite: Hallanleg sæti, stillanleg fjöðrun, farangursrými, einangrun í sessum.