Flott og skemmtilegt sett frá Thames & Kosmos fyrir upprennandi löggur, rannsakendur og réttarmeinafræðinga. Með settinu er hægt að framkvæma 26 verkefni og tilraunir til að læra hvaða spurninga slíkir aðilar þurfa að spyrja, hvernig þeir safna og greina sönnunargögn til að leysa sakamál. Þeir þurfa að vera afar athugulir, vita hvernig á að ganga frá glæpavettvangi og finna þar sönnunargögn. Ungi spæjarinn lærir þetta, ásamt því að greina fingraför, fótspor og dekkjamynstur, leysa dulkóða og dulin tákn. Í sum verkefnin þarf að nota AAA rafhlöðu, ekki innifalin.