Spennandi kænskuspil frá Thames & Kosmos fyrir 2 leikmenn, 12 ára og eldri. ‚Targi‘ er karlkyns meðlimur Tuareg fólksins sem býr í Sahara eyðimörkinni. Leikmenn leika leiðtoga ættbálka sem keppast um að veita ættbálkum sínum sem mesta velmegun. Til þess þarf að skipta á vörum, s.s. döðlum, salti og pipar, til að vinna sér inn gull og góð tækifæri og stækka ættbálkana.
Eyðimörkin er mynduð með 5×5 spilum sem raðað er á borðið. Þið setjið Targi fígúrurnar ykkar á jaðar eyðimerkurinnar og framkvæmið aðgerðirnar sem spilin segja til um. Ef þú kemst ekki til kaupmannsins getur þú ekki stundað viðskipti, eða sem verra er, andstæðingurinn verður á undan! En kannski kemur úlfaldalestin með það sem þú þarft.
Eyðimörkin er hættuleg, þar eru ræningjar og óvinaættbálkar að eltast við sömu auðlindir. Það er margt sem þarf að hafa í huga og sandurinn er síbreytilegur og hefur áhrif á val þitt í hverri umferð. En ef þú skipuleggur þig kænlega og gætir þess að eiga alltaf gull, getur þú sigrað og orðið mesti leiðtoginn!