Skemmtilegt 1000 bita púsl frá Winning Moves sem sýnir hina ýmsu karaktera sem birtast í bresku háðsádeilubrúðuþáttunum Spitting Image. Í þáttunum hafa komið fram brúðuútgáfur af þeim sem hafa verið efst á baugi hverju sinni í gegnum árin og má þar þekkja ýmsa stjórnmálamenn, fjölmiðlafólk, leikara, íþróttafólk og fleiri af þeim ríku, frægu og valdamiklu.