Skemmtilegur speglaþríhyrningur frá Janod fyrir ung börn. Á einni hlið þríhyrningsins eru margir litlir speglar, á annarri er spegill sem bjagar spegilmyndina á skondinn hátt og á þeirri þriðju eru lítil stækkunargler með lituðum filmum. Á öðrum endanum er líka lítill spegill sem snýst. Fjölmargar skemmtilegar leiðir til að skoða eigið andlit og annarra.