Glæsilegur og vandaður barnabíll frá Jamara fyrir ung börn. Eftirlíking af gerðinni Mercedes Benz-AMG GL 6. Eldri aðili getur ýtt bílnum áfram með þar tilgerðu handfangi. Þægilegt sæti úr leðurlíki og stuðningur fyrir bak ásamt öryggisgrind, og hólfi undir sætinu. Með ljósum og hljóðum (rafhlöður fylgja ekki). Gúmmídekk sem fara vel með gólf. Hægt er að taka foreldrastöng af og er bíllinn þá með U baki.