20%

So Clover! Orðaleikur á íslensku

2.490 kr. 1.992 kr.

Stórskemmtilegt samvinnu- og orðatengslaspil fyrir 3-6 leikmenn, 10 ára og eldri. Hver leikmaður fær borð í laginu eins og smári og dregur 4 lykilorðaspjöld, með 4 lykilorðum hvert, sem hann raðar á borðið. Hver 2 lykilorð mynda par og hver leikmaður þarf að upphugsa og skrifa niður vísbendingu, eitt orð, sem tengir hvert par. T.d. lykilorðaparið er KIND og FÖT. Þú skrifar niður vísbendinguna ULL.

Hinir leikmennirnir reyna síðan í sameiningu að giska á lykilorð hvers leikmanns og fá stig fyrir réttar ágiskanir. Hópurinn reynir að safna sem flestum stigum í leikslok.

Availability: Á lager

Verslun – Skemmuvegur 6

Netverslun

Vörunúmer 49-1059 Vöruflokkar , , , Tagg

Deila

Fjöldi leikmanna: 3-6
Leiktími: 30 mín
Aldur: 10+
Hönnuður: Francois Romain
Útgefandi: Repos Productions
Innihald:
– 220 lykilorðaspil
– 6 smáraborð
– 6 útstrokanlegir tússpennar
– 1 stigatafla
– leikreglur
islenska

Vörumerki

Repos Productions