Skemmtilegur samvinnuleikur frá Janod fyrir 2-4 leikmenn, 2 ára og eldri. Leikmenn eiga að bera kennsl á dýrin sem fela sig á býlinu án þess að horfa og aðeins nota snertiskynið. Leikmenn hjálpast að með því að muna saman hvar í húsinu hvert dýr er. Þegar einhver finnur dýrið sem kom upp á teningnum fær liðið hjarta, þegar það hefur safnað 6 hjörtum hefur það unnið leikinn.