Skemmtilegt föndursett sem glitrar og tindrar þér til augnayndis. Festu litríkar sindrandi pallíettur á frauðgrunninn ofan í forprentaðað mynstrið með títuprjónunum. Myndin sýnir reyndar páfagauka en þeir eru samt sannkallaðar turtildúfur. Frábært verkefni sem róar hugann og æfir nákvæmni og fínhreyfingar, auk þess sem til verður fallegur og eigulegur skrautmunur.
Blue vörulínan frá Sequin Art býður upp á frábær pallíettuföndurverkefni sem henta börnum, 8 ára og upp úr, sem og fullorðnum. Blue vörulínan er sú mest krefjandi af pallíettuföndrinu með þéttar pallíettur sem þarf að skipuleggja hvernig á að festa. Myndasíðurnar eru úr flauelskenndu efni.