Sjálfstætt framhaldsspil af vinsælu spili frá Iello eftir Reinier Knizia fyrir 2 leikmenn, 8 ára og eldri. Annar leikmaðurinn er árásarmaður sem reynir að brjóta niður veggi hins leikmannsins sem reynir að verjast eftir bestu getu. Með því að leggja út spil senda þeir bardagamenn sína út á vígvöllinn til að berjast um yfirráð en sá sem verst getur unnið sér inn sjóðandi olíupotta til að hella yfir óvininn ef í harðbakkann slær.