Flott þrautaleikfang frá framleiðendum Rubik‘s Cube. Orbit þrautin lítur kannski út fyrir að vera of flókin við fyrstu sýn en hún virkar í raun á svipaðan hátt og 2×2 teningar. Á hringnum eru 6 ‚hliðar‘ og leysa þarf þrautina þannig að hver hringur sé samlitur allan hringinn. Nútímaleg og skemmtileg hönnun á sígildri þraut sem reynir á heilann.