Flott takmörkuð afmælisútgáfa af Pyraminx þrautaþríhyrningi frá Recent Toys úr smiðju þrautahönnuðarins Uwe Meffert en liðin eru 50 ár síðan Pyraminx kom á markað. Þríhyrningurinn lítur út eins og kistall en leysa þarf þrautina með því að raða honum þannig að útlínur hverrar hliðar séu í sama lit.