Skemmtilegur útileikur frá Bex Sport sem einnig kallast Mölkky fyrir 2 eða fleiri leikmenn sem hentar frábærlega í garðinn eða útileguna. Því fleiri leikmenn því betra. Leikmenn skiptast á að nota keflið til að reyna að hitta númeruðu kubbana úr ákveðinni fjarlægð. Talan á fallna kubbnum ákvarðar stigin sem leikmaðurinn fær, nema ef fleiri en einn kubbur er felldur, þá telur fjöldi kubba sem fellur en ekki tölurnar sem standa á kubbunum. Sá sem fyrstur fær nákvæmlega 50 stig sigrar.