Skemmtilegt vísindasett frá Thames & Kosmos. Rafmagnsmótorar og rafalar eru í óteljandi tækjum sem við notum daglega. Settið kennir börnum hvernig þeir virka með því að gera 25 tilraunir sem lýst er í meðfylgjandi bæklingi (á ensku), m.a. til að breyta rafmagni í hreyfiafl og öfugt, finna út hvernig mótorinn virkar, hvernig segulsvið virka með tilliti til rafstrauma o.fl. Hagnýtt og spennandi sett fyrir upprennandi vélvirkja.