Please, add your first item to the wishlist

Please, add your first item to the wishlist

Monopoly Supernatural

9.990 kr.

Flott safnaraútgáfa af Monopoly fyrir aðdáendur Winchester-bræðranna, Dean og Sam, úr sjónvarpsþáttunum Supernatural. Leggið þeim lið í baráttunni gegn stríðinu á milli himnaríkis og helvítis. Endalok alls nálgast og þið verðið að safna visku og krafti til að losa heiminn við allt hið vanhelga. Hið illa er alls staðar og vinir geta orðið að óvinum, svo hver og einn verður að reyna að vera skrefi á undan hinum. Kaupið upp felustaði og vafasöm mótel, keppið um skrímsli, djöfla og fjórmenningana ógurlegu. Svo kannski fáiði ykkur bökusneið til að hlaða batteríin. Spennandi útgáfa af Monopoly með sérhönnuðum peðum, tengdum þáttunum (ostborgari, fleygur, Chevy Impala árgerð 67, álagapoki o.fl.).

Availability: Á lager

Vörunúmer 76-000512 Vöruflokkar , Tögg , , ,

Deila

Fjöldi leikmanna: 2-4
Aldur: 16+
Útgefandi: Winning Moves
Innihald:
-Leikborð
-6 sérhönnuð peð
-28 afsalsspil
-16 bökuspil
-16 spil fyrir reglu hinna lesnu manna
-pakki af peningum
-32 felustaðir
-12 vafasöm mótel
-2 teningar
-Leikreglur

Vörumerki

Winning moves

Skráning á biðlista Ef þú skráir þig á biðlistann þá færðu sjálfkrafa tölvupóst frá okkur um leið og varan er komin aftur á lager.