Fallegt 1000 bita púsl frá EuroGraphics með málverki eftir franska impressjónistann og listamanninn Claude Monet frá 1900. Myndin sem heitir Garður listamannsins í Giverny (The Artist‘s Garden in Giverny) sýnir garð Monet í Giverny í Frakklandi þaðan sem hann fékk mikinn innblástur.