Skemmtilegt segulleikfang frá framleiðendum Magformers og Clicformers. Inniheldur 26 segulkubba sem henta vel til að búa til ýmsa hluti sem eru frábærir í þykistuleiki. Sem dæmi er hægt að búa til eldhúsáhöld, verkfæri og vélar.
Stick-O vörurnar frá Clics Toys kynna nýja gerð af segulformum. Þau eru litrík og margvísleg að lögun en smella auðveldlega saman á sterkum seglum og geta snúist áföst við aðra segla. Þroskandi og skemmtilegt leikfang sem vex með barninu og virkjar sköpunargáfuna.