Skemmtilegt segulleikfang frá framleiðendum Magformers og Clicformers. Inniheldur 26 segulkubba með sjávar þema. Þeir henta vel til að búa til ýmsar sjávarlífverur og veiðitól, s.s. kolkrabba, veiðistöng og sæhest.
Stick-O vörurnar frá Clics Toys kynna nýja gerð af segulformum. Þau eru litrík og margvísleg að lögun en smella auðveldlega saman á sterkum seglum og geta snúist áföst við aðra segla. Þroskandi og skemmtilegt leikfang sem vex með barninu og virkjar sköpunargáfuna.