Magformers eru skemmtileg og litrík segulform sem má festa saman til að gera flottar myndir eða skúlptúra. Gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn með þessu veglega 192 bita setti og byggðu það sem þér dettur í hug, hvort sem það er dýr, farartæki, fígúra eða eitthvað allt annað. Einnig fylgja spjöld með tillögum að samsetningum. Þroskandi leikfang sem virkjar sköpunarkraft og þjálfar lausnamiðaða hugsun. Tilvalið í skólastofuna.