Flott sett frá Janod til að hjálpa börnum að læra að skrifa. Inniheldur 26 tvíhliða stafaspjöld (enskt stafróf) með stöfunum öðru megin í hástafa-og lágstafamyndum og skriffleti hinu megin til að æfa sig á. Spjöldin eru í trékassa með skúffu og í skúffunni eru útstrokanlegur penni og svampur. Gagnlegt gaman fyrir börn á leikskólaaldri.