Flott kubbaleikfang frá Janod fyrir börn. Inniheldur 40 kubba með bókstöfum, tölustöfum og punktum, ásamt 36 bita púsli með stórum bitum sem einnig sýnir stafi og tölur. Púslið má nota sem leikmottu undir kubbana þegar búið er að púsla það. Púslið er 60 x 60 cm að stærð. Ath. inniheldur ekki séríslenska stafi.