Sniðugt föndursett frá Crayola til að búa til litríkar myndir, skreyttar með nokkurs konar skrautsandi. Mynd er fest í hristarann og síðan er sett lím á útlínurnar. Þá er skrautsandur settur í hólfið á hristaranum og svo er bara að hrista! Sandurinn festist við límið og til verður flott mynd.