Flott svört heyrnartól með snúru frá Lexibook, skreytt með Stjörnustríðsmyndum. Heyrnartólin er hægt að tengja við nánast hvaða tæki sem er. Þau eru afar hentug fyrir börn því á þeim er mjúkur púði, þægilegur fyrir höfuðið, og hljóðstyrkur þeirra er takmarkaður við 85 desibel til að vernda viðkvæm eyru. Hægt er að stilla heyrnartólin í mismunandi stærðir og brjóta þau saman.