Flott blá heyrnartól með snúru frá Lexibook, skreytt með myndum af Frozen systrunum Önnu og Elsu. Heyrnartólin er hægt að tengja við nánast hvaða tæki sem er. Þau eru afar hentug fyrir börn því á þeim er mjúkur púði, þægilegur fyrir höfuðið, og hljóðstyrkur þeirra er takmarkaður við 85 desibel til að vernda viðkvæm eyru. Hægt er að stilla heyrnartólin í mismunandi stærðir og brjóta þau saman.