Sniðugt og handhægt þrautaleikfang sem er tilvalið í ferðalagið. Í bæklingnum sem fylgir með eru 60 þrautir á mismunandi erfiðleikastigum. Raðaðu plaststykkjunum í bakkann eins og þrautin sýnir og reyndu svo að fylla hann með afganginum þannig að allt passi. Einnig eru lausnir í bæklingnum.