Skemmtilegt sett frá Thames & Kosmos fyrir unga og upprennandi vísindamenn, sem veitir þjálfun í efnafræði, eðlisfræði og líffræði. Hvað þurfa plöntur til að dafna? Geta plöntur svitnað? Hvernig myndast skýin? Getur vatn runnið upp á við? Hvernig virkar stækkunargler? Hvernig blandast litir? Hvernig virkar stöðurafmagn? Og sólarúr? Þetta eru á meðal spurninga sem hægt er að fá svör við ásamt mörgum fleirum með þessu lærdómsríka tilraunasetti. Hentar bæði sem námsgagn og til áhuganota.