Skemmtilegt keiluspil frá Janod fyrir 2 eða fleiri leikmenn, 5 ára og eldri. Viðarkeilurnar eru skreyttar með frönsku fánalitunum (sem gætu gætu allt eins verið þeir íslensku) og raðað upp á fyrirfram ákveðnu leiksvæði. Leikmenn skiptast svo á að kasta keflinu í keilurnar. Markmiðið er að safna nákvæmlea 63 stigum en hver keila er merkt mismunandi stigafjölda svo mikilvægt er að vanda kastið til að hitta réttu keiluna.