Einfaldur og skemmtilegur leikur frá Janod fyrir 2-4 leikmenn, 2 ára og eldri. Á meðan einn leikmaðurinn lokar augunum, fela hinir ævintýrapersónurnar (úlfur, dreki, bjarnarfjölskylda, rauðhetta, prinsessa, prins) á bakvið trén. Sá sem á að leita kastar teningi til að sjá hvaða persónur hann á að finna. Sá sem finnur flestar persónur sigrar.