Sniðugt föndursett frá SES til að búa til dýr sem minnka fyrir augum þér! Fyrst þarf að fara ofan í útlínurnar og lita dýrin, síðan þarf að fá einhvern fullorðinn til að hjálpa og setja dýrin inn í heitan ofn. Fylgstu vel með! Dýrin minnka og verða 7 sinnum minni og 7 sinnum þykkari. Þegar þau koma út úr ofninum verða þau orðin að nokkurs konar þrívíddarfígúrum sem er hægt að festa á standana og leika sér með á leikborðinu.