Flott 24 bita barnapúsl frá King International með mynd af persónum úr Disney myndinni ástsælu Dúmbó, þar sem segir frá ævintýrum sérstæðs fíls sem er þeim kröftum búinn að geta flogið á eyrunum. Púslið fæst í tveimur útgáfum, annað með mynd af Dúmbó á flugi (týpa A) og hitt með mynd af Dúmbó og mömmu hans (týpa B).